Nýjasta bókin er komin í Pennann
Eymundsson og Forlagið á Fiskislóð

Gling Gló og Bletturinn

Þetta er fjórða bókin um Gling Gló. Dag nokkurn gerir hún svolítið sem hún má ekki og skrökvar svo um það. Amma sem er hjátrúarfull segir að börn fái svartan blett á tunguna ef þau segja ekki satt. Bókin er einstaklega skemmtilega myndskreytt og höfðar til allra barna.

Gling Gló og regnhlífin
Styrkur frá KPMG og Sjóvá

Bókagjöf til leikskóla

Sumarið 2023 fengu allir leikskólar í landinu eintök af bókunum Gling Gló og regnhlífin. Fyrirtækin Sjóvá og KPMG studdu verkefnið og einnig aðstoðuðu einstaka sveitarfélög og samtök sveitarfélaga við dreifingu. Bækurnar um Gling Gló eru ekki síður skemmtilegar á sumrin en veturna.

Gling Gló og regnhlífin
Mynd af höfundi

Hugmynd fæðist

Fyrir ekki svo löngu var ég að passa barnabarn mitt þegar hún meiddi sig á fingri. Ég setti plástur á fingur hennar kyssti svo á bágtið og sagði hugsunarlaust: Þetta grær áður en þú giftir þig. Það kom skrítinn svipur á þá stuttu og hún hafði engin áform um að gifta sig hvorki nú eða í framtíðinni. Þá fór ég að hugsa um hversu oft fullorðnir henda umhugsunarlaust fram staðhæfingum, sem yfirleitt tengjast hjátrú og börnin taka þær bókstaflega og hugmyndin að þessum bókum varð til.

Mynd af höfundi
Hrafnhildur Hreinsdóttir
Rithöfundur og bókaútgefandi

Bækurnar um Gling Gló

Bækurnar fjalla um Gling Gló sem fer öðru hvoru til ömmu í pössun. Þar leikur hún sér við Óbó sem býr í blokkinni hennar ömmu. Amma er hjátrúarfull og þegar hún hendir fram einhverri staðhæfingu sem byggist á hjátrú, þá gerist eitthvað í lífi barnanna sem trúa því sem amma segir. Bækurnar fjalla því allar um einhvers konar hjátrú. Sögurnar um Gling Gló eru ætlaðar breiðum aldurshópi eða frá 4 - 10 ára og ættu að höfða til allra barna.

1

Gling Gló og spegillinn 2022

Gling Gló og spegillinn er fyrsta bókin og segir frá því þegar börnin brjóta spegil og amma segir það boða sjö ára ógæfu.

2

Gling Gló og regnhlífin 2022

Gling Gló og regnhlífin er önnur bókin og fjallar um það þegar hún spennir upp regnhlíf innandyra sem amma segir geta valdið mikilli rigningu, sólarleysi eða verið fyrir vondu.

3

Gling Gló og Kötturinn 2023

Gling Gló og Kötturinn er þriðja og nýjasta bókin í bókaseríunni um Gling Gló. Bókin segir frá því þegar svartur köttur verður á vegi Gling Glóar og Óbó, sem hjátrúarfulla amman segir geta boðað ógæfu.

4

Gling Gló og Bletturinn 2024

Þetta er fjórða bókin um Gling Gló. Dag nokkurn gerir hún svolítið sem hún má ekki og skrökvar svo um það. Amma sem er hjátrúarfull segir að börn fái svartan blett á tunguna ef þau segja ekki satt. Bókin er einstaklega skemmtilega myndskreytt og höfðar til allra barna.

5

Gling Gló og þrettán

Væntanleg 2025

6

Gling Gló og stiginn

Væntanleg 2026

Hvað segja lesendur?

Lesendur eru á sama máli. Bækurnar skemmtilegar og fallega myndskreyttar.

Panta

Mjög ljúf lesning fyrir svefninn og hæfilega löng. Dóttir mín elskar Gling Gló og getur endalaust skoðað myndirnar

HILMAR SIGURJÓNSSON
KENNARI OG FAÐIR TVEGGJA BARNA

Skemmtilegur vinkill að skoða hjátrúna frá sjónarhóli barnanna. Ég hafði mjög gaman af ömmunni

SVANHILDUR ÓLAFSDÓTTIR
FYRRUM SKÓLASTJÓRI, MÓÐIR OG AMMA

Skemmtilegur söguþráður og yndislegar myndir. Gott að taka samtalið við börnin  að lestri loknum

JÓNA SVANDÍS ÞORVALDSDÓTTIR
KENNARI OG MÓÐIR TVEGGJA STÚLKNA

Las bækurnar fyrir afastrákinn minn og við höfðum báðir gaman að. Fallegar myndir og skemmtilegur texti

SIGURÐUR HAFSTEINSSON
GOLFKENNARI, FAÐIR OG AFI